Bæjarútgerðin Laugavegi 59 101 Reykjavík Sími 517 7710
Bæjarútgerðin almannatengsl

Bæjarútgerðin er almannatengslafyrirtæki. Meðal verkefna sem fyrirtækið fæst við er aðstoð og ráðgjöf við miðlun upplýsinga í meðbyr jafnt sem andstreymi, samskipti við fjölmiðla, umsjón og skipulagning viðburða, talsmannaþjálfun, uppbygging heimasíðna, fjölmiðlavöktun, textagerð og yfirlestur.
 
Auk almannatengsla býður Bæjarútgerðin upp á námskeið í samskiptum við fjölmiðla þar sem sérstök áhersla er lögð á sjónvarpsviðtöl. Fyrirtækið annast enn fremur útgáfu hvers konar kynningarefnis svo sem blaða, bæklinga, fréttabréfa, bóka og hljóð- og mynddiska.
 
Starfsmenn fyrirtækisins hafa mikla reynslu af fjölmiðlun, útgáfu, stjórnun og miðlun upplýsinga. Bæjarútgerðin leggur áherslu á fagmennsku, áreiðanleika, snerpu og árangur.