Bćjarútgerđin Laugavegi 59 101 Reykjavík Sími 517 7710
20.4.2010
Áhrif ösku á flugvélar: Reynsluflug Airbus sýndi ekkert óeđlilegt viđ flug í franskri og ţýskri lofthelgi
Airbus nýtti sér í gær, 19. apríl, áætlað reynsluflug til þess að meta áhrifin sem aska frá Eyjafjallajökli hefur á flugvélar sem fljúga yfir Evrópu. Tvær flugvélar fóru í loftið frá Toulouse flugvelli klukkan 14.25 og 14.50 að frönskum tíma. Á meðan á flugi stóð fylgdust áhafnir með hegðun flugvélanna og hreyflanna. Flugvélarnar voru einnig skoðaðar ýtarlega eftir að þær lentu aftur. Áhafnirnar tóku ekki eftir neinu óeðlilegu á meðan á flugi stóð og skoðun á vélunum eftir að þær lentu gaf ekki neitt óeðlilegt til kynna. Niðurstöðurnar hafa verið sendar framleiðendum hreyflanna og flugmálayfirvöldum til þess að aðstoða við að meta aðstæður til öruggs flugs.


21.10.2009
Airbus spáir yfir 400 nýjum flugvélum á Norđurlöndunum nćstu 20 árin
Flugfélögin á Norðurlöndunum munu þurfa 404 nýjar farþegaflugvélar með yfir 100 sæti næstu tuttugu árin, frá 2009-2028, samkvæmt nýjustu markaðsspá Airbus. Þörfin fyrir þessar nýju vélar er aðallega vegna endurnýjunar á eldri og eyðslufrekari vélum sem verður skipt út fyrir vistvirkari vélar sem endurspegla umhverfisvitundina á svæðinu.

6.8.2009
Ljósmyndasamkeppni sem frćđir börn um líffrćđilega fjölbreytni
Það þarf ekki að fara langt til þess að rannsaka náttúruna. Ef vel er að gáð er fjölbreytt gróðurfar og dýralíf beint fyrir utan útidyrnar. Ljósmyndasamkeppnin „See the Bigger Picture“ eða „horfðu á heildarmyndina“ hvetur börn um allan heim til þess að fara út og taka myndir af líffræðilegri fjölbreytni í nágrenni sínu og fá um leið tækifæri til þess að vinna ferð til höfuðstöðva National Geographic í Washington.

29.6.2009
„Láttu ekki vín breyta ţér í svín“ vinnur til verđlauna í Cannes
Auglýsingastofan ENNEMM hlaut viðurkenningu fyrir sjónvarpsauglýsinguna Láttu ekki vín breyta þér í svín í Cannes. Auglýsingin var valin sú besta af 400 almannaheilla-herferðum frá 35 löndum af gestum sem komu og skoðuðu svonefnda act.responsible sýningu sem sett var upp í Cannes af ACT Responsible samtökunum. Gestir sýningarinnar hafa nú í átta ár greitt atkvæði um uppáhalds auglýsingaherferðir sínar.



8.6.2009
Líffrćđileg fjölbreytni í alţjóđlegri ljósmyndasamkeppni
Hinn 5. júní, á alþjóðlegum umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna, hófst ljósmyndasamkeppnin „See the Bigger Picture“ (horfðu á heildarmyndina). Keppnin er á vegum National Geographic Society, Airbus og skrifstofu samningsins um líffræðilega fjölbreytni (Secretariat of the Convention on Biological Diversity) sem er hluti af umhverfisverkefni Sameinuðu þjóðanna. Keppnin er fyrir börn og ungt fólk á aldrinum 6-16 ára um allan heim og henni er ætlað að auka meðvitund um líffræðilega fjölbreytni. Þátttakendur eru hvattir til þess að fara út og rannsaka náttúruna, uppgötva margbreytileika lífsins í nærumhverfinu og draga upp sína mynd af líffræðilegum fjölbreytileika með hjálp myndavélar.

3.6.2009
Vorsýning Iđnskólans í Hafnarfirđi sett upp í Smáralind
Vorsýning Iðnskólans í Hafnarfirði hefur verið sett upp á 450 fermetra svæði á fyrstu hæð göngugötu Smáralindar, fyrir framan Hagkaup. Formlegur opnunardagur er á morgun, 4. júní og stendur sýningin til 14. júní. Sýningin var fyrst sett upp í skólanum og stóð frá 16. – 24. maí. Þar sem hún fær nú svo stórt rými verður hún frábrugðin skólasýningunni og meira lagt í umgjörð og uppsetningu. Sýningarumgjörðin minnir á byggingarsvæði og er munum raðað upp á verkpalla í töluverðri hæð.

2.6.2009
Air France flug AF 447
Airbus harmar að staðfesta að Airbus A330-200, sem Air France starfrækti, týndist um það bil þremur og hálfri klukkustund eftir flugtak. Flugvélin var í áætlunarflugi, flugi AF 447 frá Rio de Janiero í Brasilíu til Parísar í Frakklandi.

29.5.2009
Áhrif 15% hćkkunar gjalda á áfengis- og tóbaksverđ
Alþingi hefur samþykkt 15% hækkun á gjöldum á áfengi og tóbak. Áfengisgjald er innheimt við innflutning og er innifalið í innkaupsverði ÁTVR frá birgjum. Í samræmi við reglur verður birgjum gefinn kostur á að tilkynna nýtt verð til ÁTVR og mun verðhækkunin taka gildi að því loknu.
 
Meðfylgjandi tafla sýnir áhrif hækkunar áfengisgjalds á verð til neytenda á nokkrum völdum vörum. Tekið skal fram að hér er eingöngu miðað við breytingar á áfengisgjaldi og gengið út frá að aðrir þættir í innkaupsverðinu séu óbreyttir.

27.3.2009
Finnair endurnýjar langdrćga flotann
Finnair tók í dag á móti fyrstu Airbus A330-300 þotunni af átta sem félagið hefur pantað og hefst þar með endurnýjun langdræga flota félagsins. Í flota Finnair eru nú samtals 35 Airbus þotur af nánast öllum tegundum. Finnair var fyrsta flugfélagið sem pantaði hina nýju Airbus A350 XWB. Félagið hefur samtals pantað ellefu vélar af þeirri gerð og fær þá fyrstu afhenta árið 2014.

25.3.2009
Sigrún Helgadóttir hlaut viđurkenningu Hagţenkis
Sigrún Helgadóttir hlaut í vikunni viðurkenningu Hagþenkis árið 2008 fyrir framúrskarandi rit, bókina Jökulsárgljúfur - Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli sem bókaútgáfan Opna gaf út. Tíu bækur voru tilnefndar til viðurkenningarinnar. Athöfin fór fram í Þjóðarbókhlöðunni 23. mars. Formaður Hagþenkis, Jón Yngvi Jóhannsson veitti Sigrúnu viðurkenninguna og kr. 750.000.


1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15